• Bygging_himinn

Ljós: Heilsa og lífsgæði í manngerðu umhverfi

Fyrirlestur á hádegisfundi VFÍ 28. janúar.

28. jan. 2021

Á hádegisfundi fimmtudaginn 28. janúar fjallaði Ásta Logadóttir verkfræðingur og lýsingarsérfræðingur hjá Lotu verkfræðistofu um heilsu og lífsgæði í manngerðu umhverfi með tilliti til ljóss og birtuskilyrða.

Ásta hefur í viðtölum og blaðagreinum hvatt til þess að skýrt verði kveðið á um rétt fólks til dagsbirtu og sólarljóss í byggingareglugerð. Hún hefur lýst áhyggjum af breytingum á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010 - 2040 og að Íslendingar séu aftarlega á merinni í þessum efnum.

Ásta telur nauðsynlegt að skoða hvað í umhverfinu hindri aðkomu dagsbirtunnar, það geti verið nálægar háar byggingar, fjarlægð milli húsa, staðsetning svala ofan við glugga eða veggir sem hindri ljósið.

Upptaka frá fundinum.