Heiðruð á Degi verkfræðinnar

Þrír verkfræðingur sæmdir heiðursmerki VFÍ.

13. apr. 2015

Á Degi verkfræðinnar voru þrír verkfræðingar sæmdir heiðursmerki Verkfræðingafélags Íslands. Þau eru Sigurður Arnalds, Sigríður Ágústa Ásgrímsdóttir og Björn Dagbjartsson.

Það er Merkisnefnd VFÍ sem útnefnir þá einstaklinga sem eru sæmdir heiðursmerki félagsins. Merkið má veita í viðurkenningarskyni fyrir vel unnin störf á sviði verkfræði eða  vísinda, fyrir framtak til eflingar verkfræðingastéttinni í heild eða fyrir félagsstörf í þágu verkfræðingastéttarinnar.

Umsagnir nefndarinnar sem ritaðar voru í viðurkenningarskjölin sem fylgdu heiðursmerkinu.

Á myndinni eru Kristinn Andersen formaður VFÍ, Sigurður St. Arnalds, Sigríður Á. Ásgrímsdóttir, Björn Dagbjartsson og Árni B. Björnsson, framkv.stjóri VFÍ.

Dagur verkfræðinnar haldinn í fyrsta sinn

Dagur verkfræðinnar var haldinn í fyrsta sinn 10. apríl. Markmiðið með deginum er að kynna verkfræðina, störf verkfræðinga og ekki síst efla tengsl og samheldni meðal íslenskra verkfræðinga.

Fjölmenn ráðstefna var á Hilton Nordica þar sem fluttir voru spennandi og fjölbreyttri fyrirlestrar um viðfangsefni verkfræðinga á hinum ýmsu sviðum.