Námskeið: Að semja um hærri laun

Námskeið mánudaginn 6. mars.

27. feb. 2017

Námskeið í launaviðtölum. Haldið í Verkfræðingahúsi, mánudaginn 6. mars kl. 9-12. Leiðbeinandi er Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Viðskipta- og hagfræðideild HÍ.

Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið og er skráning með tölvupósti til: skrifstofa@verktaekni.is 

Námskeiðið er ætlað sem undirbúningur fyrir launaviðtalið. Þátttakendur leggja mat á vinnuframlag sitt, styrkleika sína og það sem þeir mættu bæta hjá sér. Þeir leggja mat á eigin menntun, hæfni, reynslu, árangur og frammistöðu í starfi. Farið verður í undirbúning launaviðtalsins og kenndar mismunandi aðferðir í samningatækni

Það sem er tekið fyrir á námskeiðinu:

  • Að leggja raunhæft mat á sjálfan sig.
  • Undirbúningur launaviðtalsins.
  • Samningatækni. 

Ávinningur:

  • Meiri innsýn í eigin styrkleika og takmarkanir.
  • Aukið sjálfstraust í launaviðtalinu.
  • Meiri árangur. 

Kennsluaðferðir:

  • Verkefni.
  • Fyrirlestur.
  • Hlutverkaþjálfun.

Lengd:

Námskeiðið er 3 klst. að lengd og kostar kr. 5.000.-

Leiðbeinandi:

Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Viðskipta- og hagfræðideild HÍ. 

Ef vel tekst til er ráðgert að halda fleiri námskeið um launaviðtöl á næstu mánuðum.