Orlofssjóður VFÍ: Ferðaávísun

Sérkjör á fjölmörgum gististöðum um allt land.

18. jún. 2020

Félögin sem eiga aðild að Frímann-kerfinu sameinuðu krafta sína og hafa gert samkomulag við fjölmörg hótel og gistiheimili víðs vegar um landið. Markmiðið er að tryggja félagsmönnum hagstæðasta verð fyrir gistingu sem völ er á. Hótelmiðar eru ekki lengur í notkun.

Ávísunin er inneign sem hægt er að nota til að greiða fyrir gistingu hjá einhverjum af fjölmörgum samstarfsaðilum okkar. Þú ert ekki skuldbundinn til að nota ávísunina á tilteknu hóteli/gistiheimili, eftir að hún hefur verið keypt. Upphæðina getur þú notað hjá hvaða samstarfsaðila okkar sem er.

Hafir þú áhuga á að kynna þér ferðaávísanir þá ferð þú á Orlofsvef VFÍ og þar smellir þú á innskráningu (efst í hægra horni) og notar rafræn skilríki eða Íslykil.

Þegar innskráningu er lokið velur þú „FERÐAÁVÍSUN“ og „Kaupa ferðaávísun“. Þar inni getur þú síðan skoðað úrvalið og keypt ferðaávísun með því að smella á þrjú strik efst í vinstra horni.

ATHUGIÐ! Nauðsynlegt er að kanna hvort það séu laus herbergi á réttum tíma og réttum stað og bóka gistingu.

Orlofssjóður VFÍ getur ekki ábyrgst að gistirými sé laust þegar félagsmaður hyggst nota ávísunina. Handhafi ávísunar þarf sjálfur að bóka herbergi og gangast undir bókunarskilmála hvers samstarfsaðila. Komi upp ágreiningur vegna veittrar þjónustu skal beina því erindi til viðkomandi samstarfsaðila. Seljandi ferðaávísunar ábyrgist ekki gæði þjónustu samstarfsaðilanna.

Ef svo háttar að umrætt hótel eða gistiheimili er fullt, eða ef ferðaáætlunin tekur breytingum þegar nær ferðinni dregur, er hægt að nota ávísunina hjá hvaða samstarfsaðila sem er, hvenær sem gistipláss er laust og með hvaða tilboði sem hótelin og gistiheimilin kunna að bjóða síðar. Þannig eru félagsmönnum tryggð bestu hugsanlegu kjör og útilokað að þeir fari á mis við betri tilboð, til dæmis þegar líður sumarið.

Orlofssjóður VFÍ veitir 20% niðurgreiðslu af uppgefnu verði. Hámarks niðurgreiðsla á almanaksári er kr. 20.000.- Punktafrádráttur fyrir hámarksnýtingu niðurgreiðslu er 10 punktar. 

Sértilboð í krafti fjöldans

Tilboðin er hægt að skoða með því að fara inn á orlofsvefinn og skrá sig inn, á sama hátt og þegar sótt er um orlofshús. Þegar smellt er á „Ferðaávísun“ opnast síða þar sem hægt er að skoða þau fjölmörgu tilboð á gistingu sem félagsmönnum standa til boða. Í boði er allt frá einfaldri gistingu á litlum gistiheimilum upp í vegleg hótelherbergi með fullri þjónustu og dýrindis morgunverði. Einnig er hægt að velja upphæð að eigin vali, til dæmis 5.000 eða 15.000 krónur, og nota hvar sem er þegar land er lagt undir fót. Ávísunin veitir aðgang að bestu tilboðum þessara hótela og gistiheimila. 

Engin binding og aukið frelsi

Ferðaávísunin er rafræn og er geymd á þínu svæði á orlofsvefnum. Kvittun berst í tölvupósti. Næsta sumar mun ávísunin alfarið leysa af hólmi hótelmiðana sem hafa verið seldir á orlofsvefnum, í sumar eru þeir einnig í boði. Þessu nýja fyrirkomulagi fylgir meira frelsi og stórauknir valmöguleikar, enda er ávísunin ekki bundin við einstakt gistiheimili, hótel eða hótelkeðju. Jafnframt geta félagsmenn nýtt ávísunina með hvaða sértilboðum sem samstarfsaðilar okkar kunna að bjóða síðar.

Ekki er þörf á að fullnýta þá inneign sem félagsmenn eiga í formi ávísunarinnar hjá einu hóteli eða gistiheimili, heldur getur hún nýst á fleiri gististöðum. Ef dýrari gisting er valin en upphaflega stóð til, greiðir félagsmaðurinn einfaldlega mismuninn á staðnum. Við hvetjum sjóðfélaga að huga tímanlega að því að panta gistingu, til að auka líkurnar á að herbergi séu laus á gististaðnum. 

Spurt og svarað um ferðaávísun OVFÍ

Hvers vegna ætti ég að kaupa ferðaávísun?

Vegna þess að hótelkeðjur og gistiheimili hafa boðið félagsmönnum stéttarfélaganna, í krafti fjölda þeirra, betri tilboð en hægt er að fá á almennum markaði.

Hvar sé ég hvaða tilboð eru í boði?

Með því að skrá þig inn á orlofsvef VFÍ, eins og þegar þú sækir um orlofshús, og velur „Ferðaávísun“. Þá koma valmöguleikarnir upp. Hvert hótel eða gistiheimili getur verið með mörg tilboð, eftir gerð herbergis og innifalinni þjónustu.

Hvernig get ég treyst því að það komi ekki fram betri tilboð eftir að ég hef keypt ferðaávísun?

Ef sá gististaður sem þú velur þér lækkar verð í millitíðinni, þá fullnýtir þú ekki ávísunina. Það er ein af lykilforsendum þessa samstarfs, að ávísunin gildi með öllum öðrum tilboðum hótelanna. 

Hvar kaupi ég ferðaávísunina og hvernig nálgast ég hana?

Þú ferð inn á orlofsvef þíns stéttarfélags og smellir á „Ferðaávísun“. Þegar þú hefur valið þér vöru og greitt fyrir með greiðslukorti, færðu kvittun í tölvupósti. Ávísunin þín verður á þínu svæði á orlofsvefnum og gististaðir geta flett kennitölunni upp, þegar þú mætir á staðinn.

Hvernig nota ég ferðaávísunina?

Þegar þú mætir á áfangastað gefur þú upp kennitölu þína, sem er þá skráð í bókunarkerfi gististaðarins. Þú þarft engu að framvísa öðru en persónuskilríkjum.

Get ég fengið ávísunina endurgreidda?

Já, þú getur fengið ferðaávísunina endurgreidda. Þú færð þá til baka sömu upphæð og þú lagðir út, hafi hún ekki verið nýtt. Hafi punktar verið teknir af félagsmanni við kaup á ferðaávísun, þá fást þeir líka endurgreiddir.

Ég hef notað hluta ferðaávísunarinnar, get ég fengið restina til baka?

Já, þú getur alltaf fengið þann hluta endurgreiddan sem ekki hefur verið nýttur. Ef ávísunin hefur verið niðurgreidd að hluta verður endurgreiðslan í réttu hlutfalli við útlagðan kostnað þinn.

Rennur ávísunin út?

Nei, hún rennur aldrei út og þú getur sótt um endurgreiðslu hvenær sem er.