Nýtt Tæknifræðisetur Háskóla Íslands

HÍ eflir umgjörð og leggur sterkan grunn að námi í tæknigreinum.

28. nóv. 2018

Þann 27. nóvember var opnað við hátíðlega athöfn nýtt Tæknifræðisetur Háskóla Íslands í Menntasetrinu við Lækinn í Hafnarfirði. Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands, og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði, undirrituðu samning um afnot Tæknisfræðisetursins af húsnæði Menntasetursins. Í frétt á vef HÍ kemur fram að með flutningi tæknifræðinámsins í Menntasetrið hyggist Háskóli Íslands efla enn frekar umgjörð þess og jafnframt leggja sterkan grunn að styttra fagháskólanámi í tæknigreinum.

Tæknifræði til BS-náms hefur undanfarin níu ár farið fram á vettvangi Keilis að Ásbrú í Reykjanesbæ en nemendur útskrifast formlega frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands. Þar sem starfsemi Keilis að Ásbrú hefur aukist mikið, eflst og þróast og til þess að svara ákalli bæði atvinnulífs og nemenda var ákveðið að ráðast í breytingar á fyrirkomulagi tæknifræðinámsins og finna því stað nær höfuðborgarsvæðinu. Samningar náðust við Hafnarfjarðabæ fyrr á árinu um aðstöðu fyrir námið í Menntasetrinu við Lækinn og hófst kennsla þar í haust. Þar stunda nú 43 nemendur nám í greininni. 

Flutningurinn er afar mikilvægur fyrir eflingu umgjarðar og aðstöðu tæknifræðináms en rekstur þess mun alfarið flytjast til Háskóla Íslands um áramót. Karl Sölvi Guðmundsson, dósent við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, verður forstöðumaður Tæknifræðisetursins en hann hefur unnið ötullega að flutningi þess í Hafnarfjörð ásamt starfsfólki einingarinnar hjá Keili sem kemur nú formlega til starfa hjá Háskóla Íslands.

Nánar um nýja Tæknifræðisetrið.

Myndin er frá opnunarathöfn Tæknifræðiseturs HÍ. Frá vinstri: Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði, Karl Sölvi Guðmundsson dósent við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands og forstöðumaður setursins, Kristinn Andersen deildarforseti Rafmagns- og tölvuverkfræðideildar og Hjálmar Árnason framkvæmdastjóri Keilis. MYND/Kristinn Ingvarson.