Orlofsdvöl í vetrarfríi - úthlutun lokið

Frestur til að greiða úthlutun er til mánudagsins 9. október.

3. okt. 2023

Úthlutun er lokið. Greiða þarf úthlutun eigi síðar en mánudaginn 9. október. Frá og með þriðjudeginum 10. október kl. 9:00 geta þeir sem fengu synjun bókað ef eitthvað hefur ekki verið greitt af því sem var úthlutað. Athugið að ganga þarf frá greiðslu um leið og bókað er.


Nú geta sjóðfélagar í Orlofssjóði VFÍ sótt um orlofsdvöl í vetrarfríi grunnskólanna í október. Um er að ræða vikuna 26. október - 2. nóvember 2023.

Umsóknarfrestur er til og með 28. september. Punktafrádráttur er sá sami og að sumri, 36 punktar.

Sótt er um á orlofsvef OVFÍ; www.orlof.is/vfi (Velja „umsókn um úthlutun“ á stikunni).

Aðeins í Klapparholti 8 og 10 er leyfilegt að vera með gæludýr.

Vetrar- og páskafrísvikum er sem fyrr úthlutað eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).

Vikan kostar 25 þúsund krónur. (Nema stóra húsið, Álfasteinssund 21 í Hraunborgum kostar 30 þúsund krónur). Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar.

Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).

Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.

Úthlutanir vegna vetrarfrís í febrúar og páskavikunnar verða auglýstar sérstaklega í upphafi nýs árs.

Á vef VFÍ eru greinargóðar upplýsingar um orlofssjóðinn:

https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/orlofssjodur/

Athugið að neðst á þeirri síðu eru upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn og sækja um.