• haustlauf

Orlofsdvöl í vetrarfríi í október

Umsóknarfrestur er til 15. september.

3. sep. 2020

Nú geta sjóðfélagar í Orlofssjóði VFÍ sótt um orlofsdvöl í vetrarfríum grunnskólanna. Um er að ræða vikurnar 15. – 22. október og 22. - 29. október.

Umsóknarfrestur er til 15. september. Punktafrádráttur er sá sami og að sumri, 36 punktar.

Sótt er um á orlofsvef OVFÍ; www.orlof.is/vfi (Velja „umsókn um úthlutun“ á stikunni).

Athugið að aðeins er heimilt að vera með gæludýr í Klapparholti 8 og 10.

Vetrar- og páskafrísvikum er sem fyrr úthlutað eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).

Vikan kostar 20 þúsund krónur nema Álfasteinssund 21 sem kostar 25 þúsund krónur. Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).

Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.

Á vef VFÍ eru greinargóðar upplýsingar um orlofssjóðinn:

https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/orlofssjodur/

Athugið að neðst á þeirri síðu eru upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn og sækja um.