• snjokall

Orlofsdvöl í vetrarfríum

Umsóknarfrestur er til 15. janúar.

16. des. 2021

Nú geta sjóðfélagar í Orlofssjóði VFÍ sótt um orlofsdvöl í vetrarfríum grunnskólanna. Um er að ræða vikuna 17. - 24. febrúar.

Umsóknarfrestur er til 10. janúar. Punktafrádráttur er sá sami og að sumri, 36 punktar.

Sótt er um á orlofsvef OVFÍ; www.orlof.is/vfi (Velja „umsókn um úthlutun“ á stikunni).

Aðeins í Klapparholti 8 og 10 er leyfilegt að vera með gæludýr.

Vetrar- og páskafrísvikum er sem fyrr úthlutað eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).

Úthlutun vegna páskavikunnar verður auglýst sérstaklega.

Vikan kostar 20 þúsund krónur. (Nema stóra húsið, Álfasteinssund 21 í Hraunborgum kostar 25 þúsund krónur). Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar.

Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).

Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.

Á vef VFÍ eru greinargóðar upplýsingar um orlofssjóðinn:

https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/orlofssjodur/

Athugið að neðst á þeirri síðu eru upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn og sækja um.