Orlofsvikur í vetrarfríum

Umsóknarfrestur er til 18. september.

11. sep. 2018

Nú geta sjóðfélagar í Orlofssjóði VFÍ sótt um orlofsdvöl í vetrarfríum grunnskólanna. Um er að ræða vikurnar 19. – 26. október og 26. október til 2. nóvember.  

Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 18. september. Punktafrádráttur er sá sami og að sumri, 36 punktar.

Sótt er um á orlofsvef OVFÍ; www.orlof.is/vfi (Velja „umsókn um úthlutun“ á stikunni).

Athugið að aðeins er heimilt að vera með gæludýr í Klapparholti 8 og þess vegna er það hús sérstakur valmöguleiki í umsókninni. 

Vetrar- og páskafrísvikum er sem fyrr  úthlutað  eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).

Vikan kostar 20 þúsund krónur. Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara  myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).

Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.

 Á vef VFÍ eru greinargóðar upplýsingar um orlofssjóðinn:

https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/orlofssjodur/

Athugið að neðst á þeirri síðu eru upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn og sækja um.