• Krokusar

Páskaúthlutun lokið

Frestur til að ganga frá greiðslu er til 10. mars.

2. mar. 2021

Búið er að úthluta orlofsdvöl um páskana 2021 hjá Orlofssjóði VFÍ.

Þau sem fengu úthlutað eru beðin um að ganga frá greiðslu eigi síðar en á hádegi miðvikudaginn 10. mars.  Einfaldast er að skrá sig inn á orlofsvef VFÍ og velja „Greiða úthlutun" og ganga frá greiðslu.
Ef ekki er greitt fyrir þann tíma verður húsið leigt öðrum, sem fengu synjun. 

Athugið að ekki verður send út áminning til félagsmanna um ógreidda orlofsviku.

Þau sem fengu synjun hafa líka fengið tölvupóst. Ástæða synjunar er líklega sú punktastaða er lægri en annarra sem sóttu um eða sótt var um of fáa valkosti. 

Frá og með fimmtudeginum 11. mars geta þeir sem fengu synjun bókað ef eitthvað hefur ekki verið greitt af því sem var úthlutað.  Athugið að ganga þarf frá greiðslu um leið og bókað er.

Hér í töflunni má sjá niðurstöðu úthlutunar:

Orlofshús Byrjar Endar Punktastaða
Akureyri - Sómatún 1 01/04/2021 08/04/2021 164
Hraunborgir, Álfasteinssund 21 01/04/2021 08/04/2021 160
Húsafell, Stórarjóður 14 01/04/2021 08/04/2021 146
Klapparholt - Stóraborg 9 01/04/2021 08/04/2021 128
Hraunborgir, Álfasteinssund 17 01/04/2021 08/04/2021 111
Klapparholt - Stóraborg 8 01/04/2021 08/04/2021 101
Klapparholt - Stóraborg 10 01/04/2021 08/04/2021 94
Hraunborgir, Álfasteinssund 19 01/04/2021 08/04/2021 92
Árnes 01/04/2021 08/04/2021 86
Klapparholt - Stóraborg 7 01/04/2021 08/04/2021 84