Siðferði og gervigreind - upptaka

Fyrirlestur Steins Guðmundssonar á Samlokufundi VFÍ.

30. nóv. 2018

Steinn Guðmundsson dósent við Háskóla Íslands fjallaði um siðferði og gervigreind á Samlokufundi VFÍ 29. nóvember. Í fyrri hluta hlutanum fjallaði hann um gervigreind almennt, skýrði tæknina á bak við hana og hver staðan er í þróun hennar. Í seinni hlutanum fjallaði Steinn um siðferðislegar hliðar þessar tækni og sagði frá vinnufundi sem var á vegum ANE (Association of Nordic Engineers) í september.

Sérfræðingar frá Danmörku, Noregi, Íslandi, Svíþjóð og Finnlandi hittust í Kaupmannahöfn hinn 25. september 2018 á hackaton-vinnufundi sem bar heitið:  Afstaða norrænna verkfræðinga og tæknifræðinga til viðmiða fyrir gervigreind og siðferði (Nordic engineers stand on artificial intelligence and ethics guidelines) og settu fram fimm tillögur að stefnumálum og gerðu lista með viðmiðum fyrir siðferðilega nálgun í þróun á sviði gervigreindar og notkun hennar. 

Upptaka frá fundinum.