Síðustu sætin á vornámskeið Dale Carnegie

Fyrir sjóðfélaga í starfsmenntunarsjóðum VFÍ. Allt að 50% lægra verð.

27. apr. 2021

Starfsmenntunarsjóðir VFÍ hafa gert samning við Dale Carnegie um sérstök kjör á námskeiðum sem nýtast bæði í starfi og einkalífi og tryggir samningurinn sjóðfélögum allt að 50% lægra verð. Námskeiðin eru í boði staðbundið eða sem „Live Online" fjarnámskeið í rauntíma. Hér fyrir neðan er lýsing á námskeiðunum. Einnig er hægt að hringja í 555 7080 eða 864 5116 til að fá nánari upplýsingar. Hægt er að skrá þátttöku á netinu (sjá neðar) og í skilaboð er sett Verktækni - þá virkjast sérkjörin.

Ávinningur af námskeiðinu:

  • Stækka þægindahringinn og auka sjálfstraust í mismunandi aðstæðum.
  • Rækta varanleg sambönd og ná fram samvinnu við aðra.
  • Sýna leiðtogafærni / hafa jákvæð áhrif á aðra.
  • Muna nöfn og nota þau.
  • Veita öðrum innblástur og kveikja eldmóð.
  • Kynna hugmyndir á skýran og hnitamiðaðan hátt.
  • Takast á við ágreining á háttvísan máta.
  • Nota sannfæringarkraft (vinna með mismunandi tjáningarform).
  • Vinna undir álagi og stjórna streitu og viðhorfi.
  • Aðlaga okkur að mismunandi samskiptastílum.

Athugið að afsláttarkjörin eru aðeins í boði fyrir sjóðfélaga í starfsmenntunarsjóðum VFÍ (annars vegar á almenna markaðinum og hins vegar á opinbera markaðinum). Að auki við afsláttarkjörin er hægt að nýta einstaklingsbundin réttindi. Upplýsingar um þau eru á „Mínum síðum" á vef VFÍ.

Dale Carnegie námskeiðið hefur verið í þróun í rúm 100 ár og er nú í boði í þremur útgáfum. Staðbundið í átta skipti með viku á milli eða staðbundið á þremur heilum dögum (föstudegi, laugardegi og sunnudegi). Síðast en ekki síst er hægt að sækja það „live online“ en Dale hefur tólf ára reynslu af „online“ þjálfun.

Valkostur A:

Dale Carnegie námskeið átta skipti - Live Online

Staðsetning: Fjarþjálfun á netinu (Live Online)

Verð: 169.000 en með niðurgreiðslu starfsmenntunarsjóðs *85.200 kr. eða 50% lægra.

*frekari niðurgreiðslur eru mögulegar samkvæmt einstaklingsbundnum réttindum.

Dagskrá:

18:00 - 21:00 | 17. maí 2021

18:00 - 21:00 | 19. maí 2021

18:00 - 21:00 | 26. maí 2021

18:00 - 21:00 | 31. maí 2021

18:00 - 21:00 | 2. júní 2021

18:00 - 21:00 | 7. júní 2021

18:00 - 21:00 | 9. júní 2021

18:00 - 21:00 | 14. júní 2021

Sjá nánar: https://island.dale.is/einstaklingar/dale-carnegie-namskeidid/?type=online

Þegar netpöntun er gerð er skráð Verktækni í skilaboð og þá virkjast afslátturinn.

Valkostur B:

Dale Carnegie námskeið átta skipti - Staðbundið

Staðsetning: Ármúli 11, 108 Reykjavík (staðbundið).

Verð: 199.000 en með niðurgreiðslu starfsmenntunarsjóðs *109.200 kr. eða 45% lægra.

*frekari niðurgreiðslur eru mögulegar samkvæmt einstaklingsbundnum réttindum.

Dagskrá:

18:00 - 22:00 | 3. maí 2021

18:00 - 22:00 | 5. maí 2021

18:00 - 22:00 | 10. maí 2021

18:00 - 22:00 | 12. maí 2021

18:00 - 22:00 | 17. maí 2021

18:00 - 22:00 | 19. maí 2021

18:00 - 22:00 | 26. maí 2021

18:00 - 22:00 | 31. maí 2021

Nánar: https://island.dale.is/einstaklingar/dale-carnegie-namskeidid/

Þegar netpöntun er gerð er skráð Verktækni í skilaboð og þá virkjast afslátturinn.

Ókeypis kynningartímar á: https://www.dale.is/einstaklingar