• likamsræktarlóð

Sjúkrasjóður - Styrktarsjóður skila umsóknum fyrir 1. desember

6. nóv. 2017

Skattfrjáls styrkur til heilsueflingar er að hámarki 55 þúsund krónur á almanaksárinu miðað við áunnin réttindi. Til að nýta þennan skattaafslátt á árinu 2017 verða umsóknir að berast fyrir 1. desember nk. – Annars næst ekki að afgreiða styrkinn fyrir áramót og verður þá að greiða skatt af upphæðinni. 

Almennt gildir að forsenda endurgreiðslu er framvísun frumrits fullgildra greiðslukvittana vegna útlagðs kostnaðar.   

Sjúkrasjóður VFÍ er fyrir sjóðfélaga á almennum markaði.

Styrktarsjóður VFí er fyrir sjóðfélaga á opinberum markaði.

Við hvetjum sjóðfélaga eindregið til að kynna sér starfsreglurnar. 

Um Sjúkrasjóðinn og umsóknareyðublað.

Um Styrktarsjóðinn og umsóknareyðublað.

Tölvupóstur var sendur til þeirra sem hafa skráð netfang hjá viðkomandi sjóði.
ATHUGIÐ að réttindi í sjóðnum eru háð félagsaðild að VFÍ (ST eða SFB) og að iðgjöld séu í skilum.