• likamsræktarlóð

Skattfrjáls líkamsræktarstyrkur

Skila þarf umsókn fyrir 1. desember til að nýta skattaafslátt.

30. nóv. 2020

Skattfrjáls styrkur til líkamsræktar er að hámarki 60 þúsund krónur á almanaksárinu miðað við áunnin réttindi. Til að nýta þennan skattaafslátt á árinu 2020 verða umsóknir að berast fyrir 1. desember nk. – Annars næst ekki að afgreiða styrkinn fyrir áramót og verður þá að greiða skatt af upphæðinni.

Almennt gildir að forsenda endurgreiðslu er framvísun fullgildra greiðslukvittana vegna útlagðs kostnaðar. Kvittunin þarf að vera útgefin af söluaðila. Þar þarf að koma fram nafn og kennitala bæði sjóðfélaga og seljanda. Einnig þarf að koma fram hvað er verið að greiða fyrir. . Ekki eru veittir styrkir vegna búnaðar, s.s. reiðhjóla, skó- og útivistarfatnaðar.

Við hvetjum sjóðfélaga í Sjúkrasjóði VFÍ (almennur markaður) og Styrktarsjóði VFÍ (opinber markaður) að kynna sér starfsreglur sjóðsins.

Sótt er um rafrænt á vef VFÍ.

Við minnum félagsmenn á að nota "Mínar síður" þar er hægt að skoða eldri umsóknir, fá upplýsingar um réttindi o.fl.

Vegna útbreiðslu COVID-19 hvetjum við félagsmenn til að nýta sér þjónustu VFÍ í gegnum síma 535 9300 eða tölvupóst fremur en að mæta á skrifstofuna.