Teningurinn

Skilafrestur var til 22. september.

10. ágú. 2022

Á Degi verkfræðinnar 21. október næstkomandi verður Teningurinn afhentur í annað sinn. Um er að ræða viðurkenningu Verkfræðingafélags Íslands fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd. Auglýst var eftir tilnefningum og frestur rann út 22. september. Einnig var hægt að skila inn óformlegum ábendingum til dómnefndar um verkefni sem talin eru þess verð að koma til greina.

Teningurinn er veittur á Degi verkfræðinnar ár hvert og eru það verkefni fyrra árs sem koma til greina. Á Degi verkfræðinnar 21. október 2022 verður því veitt viðurkenning fyrir framúrskarandi verkefni sem lokið var á árinu 2021.

Tengiliður við dómnefnd er Sigrún S. Hafstein sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Tilnefningar og ábendingar sendist til Verkfræðingafélags Íslands á netfangið: sigrun@verktaekni.is 

Um Teninginn

Markmið viðurkenningarinnar er að vekja athygli á vel útfærðum og áhugaverðum verkefnum sem verkfræðingar og tæknifræðingar vinna að.

Viðurkenningin er veitt fyrir verkefnið í heild og er það eigandi (bakhjarl) verkefnisins sem hana hlýtur. Verkefni sem eru tilnefnd geta verið af ýmsum toga, til dæmis framkvæmdaverkefni, nýsköpunarverkefni, hugbúnaðarverkefni eða umbótaverkefni. Verkefni unnin erlendis af íslenskum fyrirtækjum koma einnig til greina.

Viðmið dómnefndar

Sex viðmið eru lögð til grundvallar í mati dómefndar:

- Stóðst verkefnið tímaáætlun?
- Stóðst verkefnið kostnaðaráætlun?
- Stóðst verkefnið kröfur til gæða?
- Voru öryggis- og heilbrigðismál og vinnuumhverfi verkefnisins til fyrirmyndar?
- Hver er samfélagslegur ávinningur verkefnisins?
- Hvert er nýsköpunargildi verkefnisins?

Hver dómnefndarmaður gefur einkunn fyrir hvert viðmið og það verkefni sem hlýtur hæstu meðaltals einkunn hreppir verðlaunin.

Tilnefningar

Eigandi (bakhjarl) getur tilnefnt eigið verkefni einnig geta félagsmenn Verkfræðingafélags Íslands sent inn tillögur. Koma þarf fram hver eigandi/bakhjarl verkefnisins er auk helstu samstarfsaðila; hönnuðir, verkefnisstjórar og hver þáttur verkfræðinga og tæknifræðinga var í verkefninu.

Skjal með upplýsingum fyrir þá sem vilja senda inn tilnefningu.

Frétt um afhendingu Teningsins 2021.

Verkfræðilegur verðlaunagripur

Verðlaunagripurinn, sem var frumsýndur á Degi verkfræðinnar, hefur vakið verðskuldaða athygli. Hönnuðir eru Narfi Þorsteinsson og Adrian Rodriques. Í skemmtilegu myndbandi segja þeir frá hugmyndinni að baki Teningnum og gerð hans.

Teningurinn - verkfræðilegur verðlaunagripur.