• Thegar-karlar-stranda-skilti-002-_1611241406657

Þegar karlar stranda - upptaka

Fyrirlestur um kulnun og streitu.

21. jan. 2021

Við mælum eindregið með fyrirlestrinum hennar Sirrýar Arnardóttur sem hún flutti á hádegisfundi VFÍ 21. janúar. Umfjöllunarefnið var nýútkomin bók sem gefin var út í samstarfi við Virk: Þegar karlar stranda - og leiðin í land.

Hægt er að kaupa bókina á vef Sirrýar eða hjá bókaforlaginu Bjarti. Bókin er á sérstöku tilboði, kr. 3.300.-  með heimsendingu.

Upptaka frá fyrirlestrinum verður aðgengileg til 28. janúar.

https://vimeo.com/502805827" data-mce-href="https://vimeo.com/502805827">https://vimeo.com/502805827">https://vimeo.com/502805827

Kulnun, örmögnun, streita og alvarleg áföll hafa á undanförnum árum gert það að verkum að æ fleiri lenda í ógöngum og hrekjast jafnvel af vinnumarkaði. Og þetta á bæði við um karla og konur.

Karlar tala síður en konur um það hvernig þeim líður. Þeir velja margir hverjir að bíta á jaxlinn og bera harm sinn í hljóði. Sirrý Arnardóttir hefur tekið viðtöl við karlmenn á ólíkum aldri, úr ólíkum áttum og með mismunandi stöðu í samfélaginu og veita þau einstaka innsýn í líf þeirra og líðan. Þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa strandað og upplifað verulega vanlíðan. Þeir gátu ekki unnið og voru við það að sökkva. En þeir gripu til aðgerða, fóru að vinna í sínum málum og komust í land.

Í bókinni er einnig fjallað um það hvernig karlmenn fyrri tíma brugðust við örmögnun og áföllum og rætt við sálfræðing og félagsráðgjafa um veruleika þeirra sem stranda í lífinu.

Bókin var gefin út í samvinnu við VIRK – starfsendurhæfingarsjóð. Áður hefur Sirrý sent frá sér bókina Þegar kona brotnar – og leiðin út í lífið á ný sem mæltist afar vel fyrir.