VerkTækni golfmótið 2019

Haldið hjá golfklúbbi Grindavíkur 30. ágúst.

13. ágú. 2019

VerkTækni golfmótið verður haldið á Húsatóftavelli hjá golfklúbbi Grindavíkur föstudaginn 30. ágúst. Skráning er í fullum gangi á golf.is. Þau sem ekki hafa aðgang inn á þann vef geta sent tölvupóst:tilkynningar@verktaekni.is Í póstinum þarf að koma fram fullt nafn, forgjöf og með hverjum er óskað að spila. Athugið að ekki eru allar skráningar sem hafa borist með tölvupósti komnar inn á golf.is.

Mótsstjórn mun endurraða í holl telji hún þörf á því.

Skráið ykkur strax í þetta skemmtilega mót!

Dagskrá í grófum dráttum:

12:00 Mæting á Húsatóftavöll.
13:00 Ræst út á öllum teigum samtímis.

Kvöldverður og verðlaunaafhending í klúbbhúsinu.

Mótsgjald er kr. 5.000.- Kvöldmatur innifalinn.

Staðsetning og fyrirkomulag
VerkTækni golfmótið verður nú haldið í 22. skipti og fer að þessu sinni fram hjá golfklúbbi Grindavíkur, Húsatóftavelli föstudaginn 30. ágúst. Mótið er fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga sem eru félagmenn í VFÍ, maka þeirra og gesti. Keppt er í sveitakeppni á milli verkfræðinga og tæknifræðinga þar sem 5 bestu skor telja án forgjafar. Einnig er keppt í eftirtöldum flokkum einstaklinga:

Félagsmenn VFÍ
Besta skor án forgjafar, veitt eru verðlaun fyrir efsta sæti.
Punktakeppni með fullri forgjöf, veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sæti.

Gesta- og makakeppni
Besta skor án forgjafar, veitt eru verðlaun fyrir efsta sæti.
Punktakeppni með fullri forgjöf, veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sæti.

Tilkynnt verður um önnur verðlaun á staðnum, til dæmis nándarverðlaun o.þ.h.

Athugið að mótið er opið fyrir alla golfara í VFÍ óháð stöðu forgjafar! – Megintilgangurinn er að halda skemmtilegt mót.