Vetrarúthlutun Orlofssjóðs VFÍ

Opnað fyrir umsóknir mánudaginn 20. ágúst kl. 13.

17. ágú. 2018

Mánudaginn, 20. ágúst kl. 13:00, verður hægt að bóka orlofsvikur frá 13. september 2018 til 16. maí 2019 á orlofsvef OVFÍ; www.orlof.is/vfi

Fyrstu vikur september eru notaðar til viðhalds og þrifa, nema í íbúðinni Skarðshlíð Akureyri.

Athugið að vegna framkvæmda verður nýja húsið í Hraunborgum ekki í boði fyrr en 29. nóvember.

Um vetrarleigu gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara  myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign). 

Eins og áður verður vetrarfrísvikum grunnskólanna úthlutað sérstaklega. Um er að ræða vikurnar:  18. október 2018 til 1. nóvember 2018 og 21. febrúar 2019 til 7. mars 2019. Páskavikunni 18. apríl til 25. apríl 2019 verður einnig úthlutað sérstaklega. 

Í vetrar- og páskafrísvikum er sem fyrr  úthlutað  eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).

Eins og áður eru orlofshúsin leigð frá fimmtudegi til fimmtudags. Hver félagsmaður getur bókað eina orlofsviku fyrir áramót og aðra eftir áramót.

Athugið að orlofsvikur fást ekki endurgreiddar. 

Teknir verða 3 punktar fyrir hverja orlofsleigu að vetri, vikan kostar kr. 20.000.- Nema stærsta húsið í Hraunborgum kostar kr. 25.000.- 

Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta. 

Á vef VFÍ eru greinargóðar upplýsingar um orlofssjóðinn:

https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/orlofssjodur/

Athugið að neðst á þeirri síðu eru upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn og sækja um.