• haustlauf

Vetrarúthlutun Orlofssjóðs VFÍ

Opnað fyrir umsóknir mánudaginn 8. júlí kl. 9.

5. júl. 2019

Frá og með mánudeginum 8. júlí kl. 9:00 - verður hægt að bóka orlofsvikur frá 12. september 2019 til 21. maí 2020 á orlofsvef OVFÍ; www.orlof.is/vfi

Fyrstu vikur september eru notaðar til viðhalds og þrifa, nema í íbúðinni við Nónhæð í Garðabæ.

Um vetrarleigu gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).

Eins og áður verður vetrarfrísvikum grunnskólanna úthlutað sérstaklega. Um er að ræða vikurnar: 17. til 31. október 2019 og 20. febrúar 2020 til 5. mars 2020. Páskavikunni 9. til 16. apríl 2020 verður einnig úthlutað sérstaklega.

Í vetrar- og páskafrísvikum er sem fyrr úthlutað eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).

Eins og áður að vetri eru orlofshúsin leigð frá fimmtudegi til fimmtudags. Hver félagsmaður getur bókað eina orlofsviku fyrir áramót og aðra eftir áramót.

Athugið að orlofsvikur fást ekki endurgreiddar.

Teknir verða 3 punktar fyrir hverja orlofsleigu að vetri, vikan kostar kr. 20.000.- Nema stærsta húsið í Hraunborgum kostar kr. 25.000.-

Athugið að einungis er heimilt að vera með gæludýr í Klapparholti 8. 

Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta. 

Á vef VFÍ eru greinargóðar upplýsingar um orlofssjóðinn:

https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/orlofssjodur/

Athugið að neðst á þeirri síðu eru upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn og sækja um.