• heidursveiting_vfi_a_taeknidegi_i_hr

Viðurkenningar fyrir lokaverkefni

VFÍ veitti viðurkenningar fyrir lokaverkefni í tæknifræði.

15. maí 2018

Á Tæknidegi Háskólans í Reykjavík voru afhentar viðurkenningar VFÍ fyrir áhugverð og vel unnin lokaverkefni. Páll Gíslason formaður VFÍ afhenti viðurkenningarnar. Þrjú verkefni hlutu viðurkenningu að þessu sinni. Á myndinni eru Guðrún A. Sævarsdóttir deildarforseti Tækni- og verkfræðideildar HR, Birgir Hrafn Sæmundsson, Grétar Bragi Bragason, Páll Gíslason formaður VFÍ og Kristjana Kjartansdóttir, varaformaður VFÍ.  

Grétar Bragi Bragason, Vél- og orkutæknifræði. 
Hönnun og prófun höggdeyfis fyrir keppnisbíl Team Sleipnir

Verkefni þetta fjallar um hönnun og próf- un höggdeyfis fyrir formúlu keppnisbíl stúdentaliðsins Team Sleipnir. Markmið verkefnisins er að hanna, greina, smíða og prófa höggdeyfi ásamt undirplötu sem stenst reglur SAE og IMechE og öryggisskoðun FSUK þannig að bíll Team Sleipnir fái þátttökurétt í aksturshluta keppninnar árið 2018. Einnig er markmið verkefnisins að létta höggdeyfinn um a.m.k. 20% og minnka stærð hans frá eldri hönnun liðsins. Niðurstöður verkefnisins er fullbúinn högg- deyfir sem stenst markmið liðsins Team Sleipnir og reglur SAE og IMechE og öryggis- skoðun FSUK árið 2018. 

Ómar Þór Sigfússon, Rafmagnstæknifræði
Hönnun gítarpedals eftir lampamagnara

Bjögun á hljóðmerki er í nær öllum tilvikum óæskilegur hlutur í mögnurum og hljóðrásum, en í heimi gítarleikara er hún eftirsótt og velkominn. Með yfirkeyrslu magnara er hægt að ná fram bjögun á hljóðmerki sem er stór hluti af rokktónlist. Í þessu verkefni er ætlunin að skoða hvernig lampi virkar og greina formagnara í Marshall JCM 800 lampamagnara. En meginmarkmið verkefnisins er að hanna og búa til gítarpedal sem hljómar líkt og magnarinn. Nær öll hermun mun fara fram í LTspice og úrvinnsla gagna í Matlab, að lokum verður prentplata hönnuð í Altium og pedall fullgerður.

Birgir Hrafn Sæmundsson, byggingartæknifræði
Gler sem byggingarefni
Gler hefur verið framleitt í mörg þúsund ár. Til að byrja með aðallega í skartgripi og annað slíkt en nú sjáum við gler allt um kring hvort sem það er í byggingum, farartækjum, farsímum eða öðru. Á síðastliðnum 60 árum hefur framleiðsla á gleri tekið miklum framförum og að mati höfundar á mikil framþróun eftir að eiga sér stað í gleri í náinni framtíð. Það er mín spá að gler komi til með að vera notað meira sem burðarefni og með því ná hönnuðir mannvirkja að kalla fram meira gagnsæi byggingarhluta.
Í þessu verkefni er farið yfir sögu og framleiðslu helstu tegunda glerja sem eru notuð í byggingariðnaði.