Upplýsingar í kjölfar atkvæðagreiðslu
Lögfræðilegt álit - Skráningar í deildir VFÍ.
Í kjölfar atkvæðagreiðslu um kjarasamning VFÍ við Félag ráðgjafarverkfræðinga bárust skrifstofu VFÍ athugasemdir og fyrirspurnir frá félagsmönnum. Af því tilefni hefur framkvæmd atkvæðagreiðslunnar verið yfirfarin og eru hér settar fram skýringar á stöðu mála og þeim atriðum sem vakið hafa spurningar.
Lögfræðilegt álit á stöðu mála
Skrifstofa VFÍ leitaði álits lögfræðings félagsins á stöðu mála ef upp kæmu athugasemdir eða óánægja með framkvæmd atkvæðagreiðslu:
- Samkvæmt 3. mgr. 5. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur gildir kjarasamningur frá undirritun nema honum sé hafnað innan fjögurra vikna frá undirritun og atkvæðagreiðslan uppfylli kröfur laganna um þátttöku og fyrirkomulag. Í tilviki kjarasamnings VFÍ og Félags ráðgjafarverkfræðinga (FRV) skuldbundu aðilar sig til að framkvæma atkvæðagreiðslu og tilkynna niðurstöðu eigi síðar en kl. 16:00 þann 29. janúar sl.
Skýring: Annars vegar er um lögboðinn fjögurra vikna frest að ræða, sbr. 3. mgr. 5. gr. l. 80/1938. Hins vegar er um samningsbundinn frest að ræða, sem aðilar koma sér sjálfir saman um í samningi. VFÍ og FRV sömdu sérstaklega um að þessi frestur yrði til kl. 16 þann 29. janúar sl.
Þar sem aðilar sömdu sérstaklega um styttri frest í þessu tilfelli, þá gildir samningsbundni fresturinn.
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning er ekki sambærileg við kosningar um embætti eða tillögur á aðalfundum, þar sem valkostir eru bornir saman á jafnræðisgrundvelli. Hún byggir á þeirri forsendu að samninganefnd hafi undirritað kjarasamning sem bindur aðila, nema félagsmenn hafni honum innan tiltekins frests. Hvor aðili samningsins ber sjálfur ábyrgð á framkvæmd atkvæðagreiðslunnar, sbr. einnig 3. gr. laga nr. 80/1938.
Ef stéttarfélag framkvæmir ekki atkvæðagreiðslu eða kýs að gera það ekki, bindur kjarasamningurinn félagsmenn frá undirritun, enda hafi engin synjun verið tilkynnt innan lögbundins frests.
Í tilviki kjarasamnings VFÍ og FRV er ljóst að frestur til að tilkynna synjun samningsins er liðinn. Samningurinn telst því bindandi gagnvart viðsemjanda, enda mátti FRV vera í góðri trú þegar þeim var tilkynnt um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar. Þótt niðurstaðan hafi verið naum var samningurinn samþykktur með meirihluta atkvæða.
Ekki er unnt, gagnvart viðsemjanda, að rifta samningnum eða setja fyrirvara um nýja atkvæðagreiðslu á þessu stigi, nema hugsanlega með skýru samkomulagi beggja aðila. Ekki verður heldur séð að einstakir félagsmenn eigi kröfu á að atkvæðagreiðslan fari fram á ný, þar sem lögbundinn tilkynningarfrestur er liðinn.
Þetta kann hins vegar að vera tilefni fyrir skrifstofu VFÍ til að endurskoða verklag, félagaskrá og viðmiðunarreglur um framkvæmd atkvæðagreiðslna.
Félagsmenn sem óska eftir viðbótarréttindum umfram það sem kjarasamningur kveður á um geta rætt slíkt við sína yfirmenn sem hluta af persónubundnum ráðningarsamningum. Slíkt breytir þó ekki þeirri friðarskyldu sem gildir meðan kjarasamningur er í gildi.
Skráning félagsmanna í deildir VFÍ
Í tengslum við atkvæðagreiðsluna kom í ljós að margir félagsmenn eru ekki vissir um skráningu sína hjá félaginu, þ.e. hvort þeir tilheyri Kjaradeild eða Deild stjórnenda og sjálfstætt starfandi.
Við inngöngu í VFÍ velja félagsmenn sjálfir hvorri deildinni þeir tilheyra. Félagsmenn sem skráðir eru í Deild stjórnenda og sjálfstætt starfandi fengu ekki sendan atkvæðaseðil.
Unnið er að því að gera upplýsingar um deildaskráningu aðgengilegar á Mínum síðum. Þar til sú breyting hefur verið innleidd geta félagsmenn sent fyrirspurn á skrifstofu VFÍ á netfangið skrifstofa@verktaekni.is til að fá upplýsingar um skráningu sína og/eða óska eftir breytingu.
Skýring: VFÍ er deildaskipt félag. Kjaradeild er deild launþega og fer með kjaramál félagsins. Aðeins þeir félagsmenn sem eiga aðild að Kjaradeild greiða atkvæði um kjarasamninga.
Félagsmenn sem skráðir eru í Deild stjórnenda og sjálfstætt starfandi hafa valið að standa utan kjaramála. Sá hópur er ekki bundinn af kjarasamningum og er undanþeginn verkfallsaðgerðum. Því hefur verið talið eðlilegt og réttlátt að þeir hafi ekki áhrif á niðurstöðu atkvæðagreiðslna um kjarasamninga.
Yfirferð félagaskrár og útsending kjörseðla
Félagaskrá og útsending kjörseðla hafa verið yfirfarin í kjölfar atkvæðagreiðslunnar. Í ljós komu örfá tilvik þar sem félagsmenn sem ekki störfuðu á FRV stofu á tilteknu tímabili fengu kjörseðil.
Skrifstofa VFÍ harmar að þetta hafi átt sér stað og mun leita allra leiða til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig í framtíðinni.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla
