Páskaúthlutun Orlofssjóðs VFÍ

Ný íbúð á Akureyri tekin í notkun.

7. feb. 2026

Nú er hægt að sækja um dvöl í orlofshúsum OVFÍ um páskana 2026.

Umsóknarfrestur er til og með 23. febrúar.

Leigutíminn er 2. – 9. apríl. Athugið að íbúðin í Nónhæð Garðabær, sem er yfirleitt í dagsleigu, verður í vikuleigu yfir páskana. Ný íbúð á Akureyri, Sómatúni 1 – íb. 102 er nú á orlofsvefnum og hægt að bóka.

Sem fyrr er úthlutað eftir punktaeign sjóðfélaga.

Punktafrádráttur er eins og að sumri og í vetrarfríum grunnskólanna, þ.e. 36 punktar. (Við almenna vetrarleigu er frádrátturinn 3 punktar).

Athugið að til að eiga meiri möguleika á úthlutun er betra að sækja um fleiri möguleika en færri.

Aðeins í Klapparholti 8 og 10, Álfasteinssundi 19 og Stórarjóðri 14 Húsafelli er leyfilegt að vera með gæludýr.

Sótt er um á orlofsvef VFÍ: http://www.orlof.is/vfi/ (velja:„Umsókn um úthlutun" á stikunni efst).

Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).

Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.

Á vef VFÍ eru greinargóðar upplýsingar um orlofssjóðinn:

https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/orlofssjodur/

Athugið að neðst á þeirri síðu eru upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn og sækja um.