Jarðskjálftaáhætta á Íslandi
SERICE - Seismic Risk in Iceland.
Málþing á vegum Háskóla Íslands, Rannís og Verkfræðingafélags Íslands helgað SERICE rannsóknaverkefninu sem fékk þriggja ára Öndvegisstyrk frá Rannís árið 2021. Málþingið verður haldið í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, mánudaginn 9. september og fer fram á ensku. Þátttaka er ókeypis.
Umhverfis- og byggingarverkfræðideild (UBD) við Háskóla Íslands hefur undanfarin misseri unnið að rannsóknaverkefninu: „Jarðskjálftaáhætta á Íslandi“ (SERICE – Seismic Risk in Iceland) sem fékk Öndvegisstyrk frá Rannís 2021. Árið 2024 er lokaár verkefnisins og af því tilefni á að halda eins dags málþing þar sem afurðir verkefnisins verða m.a. kynntar. Þrír doktorsnemar munu kynna sín rannsóknarverkefni sem öll eru unnin innan ramma SERICE en einnig aðrir sérfræðingar UBD sem hafa unnið að rannsóknaverkefninu. Loks koma til landsins erlendir sérfræðingar, sem eru samstarfsaðilar í verkefninu sem munu halda erindi á sviði jarðskjálftaverkfræði.
Athugið að frestur til að skrá þátttöku rennur út miðvikudaginn 4. september.