Vetrarleiga Orlofssjóðs VFÍ

Frá 8. júlí verður hægt að bóka orlofsvikur fram í miðjan maí 2025.

5. júl. 2024

Frá og með mánudeginum 8. júlí kl. 10:00 er hægt að bóka orlofsvikur frá lokum ágústmánaðar 2024 til 16. maí 2025 á orlofsvef OVFÍ; www.orlof.is/vfi

Að gefnu tilefni viljum við biðja sjóðfélaga að ganga vel um og láta vita ef eitthvað skemmist í bústöðunum.

Um vetrarleigu gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).

Eins og áður að vetri eru orlofshúsin leigð frá fimmtudegi til fimmtudags. Hver sjóðfélagi getur bókað eina orlofsviku fyrir áramót og aðra eftir áramót.

Teknir verða 3 punktar fyrir hverja orlofsviku að vetri. Verðið er óbreytt; vikan kostar kr. 25.000.- Nema stærsta húsið í Hraunborgum kostar kr. 30.000.-

Vetrarfrí og páskar

Eins og áður verður vetrarfrísvikum grunnskólanna úthlutað sérstaklega. Um er að ræða vikuna: 24. október til 1. nóvember 2024 og vikuna 21. - 28. febrúar 2025. Páskavikunni 17. til 24. apríl 2025 verður einnig úthlutað sérstaklega.

Í vetrar- og páskafrísvikum er sem fyrr úthlutað eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).

Breyting á leigu íbúðar í Garðabæ

Vegna eindreginna óska verður íbúðin við Nónhæð í Garðabæ í dagsleigu. Sólarhringurinn kostar kr. 5.000.- og frádráttur 1 punktur á sólarhring. Er þetta gert til að koma til móts við þá félagsmenn sem þurfa t.d. að sækja þjónustu í miðri viku til höfuðborgarsvæðisins. 

Nýir bústaðir í Húsafelli

Orlofssjóðurinn er að byggja tvo glæsilega bústaði í Húsafelli. Sjóðfélagar munu fá tölvupóst þegar þeir verða tilbúnir til útleigu á haustmánuðum 2024.

Athugið að einungis er heimilt að vera með gæludýr í þremur bústöðum í Klapparholti (Stóruborg 8 og 10) og Álfasteinssundi 19, Hraunborgum.

Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.

Á vef VFÍ eru greinargóðar upplýsingar um orlofssjóðinn:

https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/orlofssjodur/

Myndin er af nýjum bústað OVFÍ við Birkirjóður í Húsafelli.