Nýr kjarasamningur við FRV samþykktur
Rafræn atkvæðagreiðsla fór fram 2. - 6. janúar.
Kjarasamningur
Verkfræðingafélags Íslands við Félag ráðgjafarverkfræðinga hefur verið samþykktur.
Nýi samningurinn nær einnig til félagsmanna í Stéttarfélagi byggingafræðinga og Stéttarfélagi tölvunarfræðinga.
Verkfræðingar og tæknifræðingar sem starfa á FRV verkfræðistofum samþykktu nýjan kjarasamning við Félag ráðgjafarverkfræðinga, en rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn fór fram 2.– 6. janúar.
Alls voru 668 á kjörskrá og greiddu 448 af þeim atkvæði eða 67,1%
Af 448 sem tóku afstöðu samþykktu 381 eða 85%
samninginn.
Nei sögðu 58.
Níu skiluðu auðu.