Orlofsdvöl um páskana - Úthlutun lokið
Umsóknarfrestur var til og með 28. febrúar.
Lokið er orlofsúthlutun vegna páska 2025. Þau sem sóttu um hafa fengið tölvupóst með upplýsingum. Þau sem fengu umsókn samþykkta þurfa að ganga frá greiðslu eigi síðar en föstudaginn 14. mars. Frá og með mánudeginum 17. mars kl. 10:00 geta þau sem fengu synjun bókað ef eitthvað hefur ekki verið greitt af því sem var úthlutað. Athugið að ganga þarf frá greiðslu um leið og bókað er.
Eldri frétt og tölvupóstur til sjóðfélaga frá 6. febrúar 2025.
Nú er hægt að sækja um dvöl í orlofshúsum OVFÍ um páskana 2025.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar.
Leigutíminn er 17. – 24. apríl. Orlofsleiga er kr. 25.000.- (Nema stóra húsið, Álfasteinssund 21 í Hraunborgum kostar kr. 30.000.-). Athugið að íbúðin í Nónhæð Garðabær, sem er yfirleitt í dagsleigu, verður í vikuleigu yfir páskana.
Sem fyrr er úthlutað eftir punktaeign sjóðfélaga.
Punktafrádráttur er eins og að sumri og í vetrarfríum grunnskólanna, þ.e. 36 punktar. (Við almenna vetrarleigu er frádrátturinn 3 punktar).
Athugið að til að eiga meiri möguleika á úthlutun er betra að sækja um fleiri möguleika en færri.
Aðeins í Klapparholti 8 og 10 og Álfasteinssundi 19 er leyfilegt að vera með gæludýr.
Sótt er um á orlofsvef VFÍ: http://www.orlof.is/vfi/ (velja:„Umsókn um úthlutun" á stikunni efst).
Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).
Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.
Á vef VFÍ eru greinargóðar upplýsingar um orlofssjóðinn:
https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/orlofssjodur/
Athugið að neðst á þeirri síðu eru upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn og sækja um.