• fjolublatt_blom

Sumarúthlutun Orlofssjóðs VFÍ

Tölvupóstur hefur verið sendur til þeirra sem sóttu um.

25. apr. 2022

Sumarúthlutun Orlofssjóðs VFÍ er lokið. Þau sem sóttu um hafa fengið upplýsingar í tölvupósti. Frestur til að greiða úthlutun er til hádegis mánudaginn 9. maí. Frá og með þriðjudeginum 10. maí kl. 9:00 geta þau sem fengu synjun bókað vikur sem þá eru lausar. Þá gildir reglan fyrstur bókar, fyrstur fær.

Úthlutað var eftir punktaeign félagsmanna, sá sem flesta hefur punktana fékk umbeðna viku. Þær vikur sem ekki ganga út eftir úthlutun verða í boði fyrir þau sem sóttu um og ekkert fengu. Í lokin verða svo lausar vikur boðnar öllum sjóðfélögum, þá gildir reglan fyrstur kemur – fyrstur fær.

Leigt er frá föstudegi til föstudags. (Tjaldvagn frá fimmtudegi til miðvikudags).

Sumartímabilið 2022 er frá 4. júní til 27. ágúst. Fyrir síðustu vikuna í júní, allar vikur í júlí og fyrstu vikuna í ágúst eru dregnir frá 36 punktar. Fyrir aðrar vikur að sumri dragast frá 30 punktar.

Punktastaða miðast við áramót 2021-2022.

Upplýsingar um Orlofssjóð VFÍ.

Sjóðurinn býður einnig upp á Ferðaávísun, inneign sem hægt er að nota til að greiða fyrir gistingu hjá fjölmörgum samstarfsaðilum sjóðsins. Gisting á Icelandair hótelum er innan ferðaávísunar og ekki lengur seldir hótelmiðar. Nánari upplýsingar.