Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands
Frestur til að skila inn framboðum og tillögum er til 15. febrúar.
Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl kl. 17:00. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9.
Samkvæmt félagslögum á að skila framboðum í stjórnir félagsins og tillögum sem leggja á fyrir aðalfund eigi síðar en 15. febrúar.
Kosið verður í aðalstjórn VFÍ, stjórn Kjaradeildar VFÍ og stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi í VFÍ.
Félagsmenn eru hvattir til að gefa kost á sér í gefandi og skemmtileg störf fyrir félagið.
Senda á framboð og tillögur til framkvæmdastjóra félagsins Árna B. Björnssonar.
Nánar um stjórnarkjör
Kosning í aðalstjórn
Svana Helen Björnsdóttir formaður VFÍ hefur lokið sex ára hámarks setu í stjórn og því verður kosið um nýjan formann VFÍ.
Úr stjórn eiga einnig að ganga Guðrún Sævarsdóttir meðstjórnandi og Þröstur Guðmundsson varameðstjórnandi. (Hefur þegar látið af stjórnarstörfum).
Því er kosið um formann, meðstjórnanda og varameðstjórnanda til tveggja ára.
(Sjá 11. grein laga VFÍ um stjórnarkjör).
Kosning í stjórn Kjaradeildar
Gunnar Sigvaldason formaður Kjaradeildar VFÍ hefur lokið sex ára setu í stjórn og því er kosið um nýjan formann Kjaradeildarinnar. Úr stjórn Kjaradeildar eiga einnig að ganga Eyþór Helgi Úlfarsson meðstjórnandi, Halldór Zoëga meðstjórnandi og Una Guðrún Gautadóttir varameðstjórnandi.
Því er kosið um formann Kjaradeildarinnar, tvo meðstjórnendur og varameðstjórnanda til tveggja ára.
(Sjá 12. grein laga VFÍ um stjórnarkjör Kjaradeildar).
Kosning í Deild stjórnenda og sjálfstætt starfandi
Páll Á. Jónsson formaður SVFÍ hefur lokið sex ára setu í stjórn og því er kosið um nýjan formann SVFÍ.
Úr stjórn SVFÍ eiga einnig að ganga Stefán Veturliðason, Bergþór Þormóðsson (vegna sex ára reglu) og Jón Guðmundsson varameðstjórnandi. Því er kosið um formann og meðstjórnanda til tveggja ára, meðstjórnanda til eins árs og varameðstjórnanda til eins árs.
(Sjá 13. grein laga VFÍ um stjórnarkjör Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi).
Dagskrá aðalfundar samkvæmt félagslögum
1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
2. Reikningar félagsins, þ.m.t. reikninga deilda og sjóða félagsins, fyrir undanfarandi starfsár lagðir fram til samþykkis.
3. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
4. Tillögur félagsstjórnar.
5. Lýst kosningu stjórnar.
6. Kjör endurskoðanda og skoðunarmanns.
7. Lýst kosningu í stjórn Kjaradeildar félagsins.
8. Lýst kosningu í stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi.
9. Laun formanns og stjórnarmanna.
10. Laga- og reglugerðarbreytingar.
11. Önnur mál.