Samningur við Reykjavíkurborg samþykktur
65,1% samþykktu samning sem áður hafði verið hafnað.
Kjarasamningur milli Verkfræðingafélags Íslands og Reykjavíkurborgar var undirrritaður 2. júní, kynningarfundur var haldinn og í framhaldinu atkvæðagreiðsla sem lauk á hádegi 10. júní.
Niðurstaðan var sú að samningurinn var samþykktur en sama samningi hafði áður verið hafnað.
Já sögðu: 65,1%
Nei sögðu: 34,9%
Alls voru 57 á kjörskrá og greiddu 43 af þeim atkvæði, eða 75%.
Upplýsingar um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.