Menntakerfið - Upptaka frá ráðstefnu
Ráðstefna VFÍ haldin 26. september 2024.
Sátt um betra menntakerfi. Ráðstefna á vegum Verkfræðingafélags Íslands sem haldin var 26. september 2024.
Reynt var að greina stöðuna í menntakerfinu og hvaða leiðir eru færar til úrbóta. Sérstök áhersla var á stöðu raungreina og fulltrúi frá sænska verkfræðingafélaginu sagði frá átaki þar í landi til að efla stöðu svokallaðra STEM greina (Science, Technology, Engineering, Mathematics).
Dagskrá ráðstefnunnar.
13:00 – 13:10 Setning.
Páll Á. Jónsson, varaformaður VFÍ.
13:10 – 13:40 Átak í að efla STEM greinar í sænska skólakerfinu.
Johan Kreicsberg yfirmaður stefnumótunar hjá sænska verkfræðingafélaginu, Sveriges Ingenjörer.
13:40 – 14:00 Kynning á samSTEM, verkefni HÍ, HR og HA
Anna Helga Jónsdóttir, prófessor við Raunvísindadeild HÍ.
14:00 – 14:20 Námstími til stúdentspróf og fleiri framfaramál.
Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla.
14:20 – 14:40 Hver er staða nemenda við upphaf háskólanáms?
Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ.
14:40 – 15:00 Kaffihlé.
15:00 – 15:20 Staðan í framhaldsskólunum. - Sýn kennara. Samlíf – Samtök líffræðikennara. Sólveig Guðrún Hannesdóttir, líffræðikennari og rektor MR.
15:20 – 15:40 Brottfall – afhverju? Staða drengja í menntakerfinu.
Tryggvi Hjaltason, höfundur samnefndrar skýrslu, formaður Hugverkaráðs.
15:40 – 15:50 Samantekt og slit.
Öll velkomin.
Málþingið er á vegum Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi í VFÍ (SVFÍ).