Staðan í kjaraviðræðum

Upplýsingafundir á verkfræðistofunum.

19. des. 2024

Fundað með félagsmönnum á verkfræðistofunum

Samninganefnd VFÍ við FRV átti stefnumót við félagsmenn á verkfræðistofum með upplýsingafundum um gang mála við samningaborðið. Fundirnir voru vel sóttir og mikil ánægja með þetta framtak að mæta á vinnustaðina og upplýsa um stöðuna. Félagsmenn höfðu orð á því hve undarlegt það væri að samningsumboð FRV væri komið yfir til Samtaka atvinnulífsins (SA) sem þekktu lítið til starfsumhverfis stofanna.

Í framhaldinu var samningafundur með FRV miðvikudaginn 11. desember. Það er skemmst frá því að segja að á þeim fundi sleit samninganefnd VFÍ viðræðunum, þar sem lítið sem ekkert hefur miðað í samkomulagsátt. Samninganefnd VFÍ sendi félagsmönnum VFÍ á verkfræðistofunum póst þar sem staða mála var útskýrð. 

Af samningaviðræðum við Reykjavíkurborg er það að frétta að ákveðið hefur verið að næsti samningafundur verður ekki fyrr en 13. janúar á nýju ári. 

Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga var kynntur föstudaginn 19. desember og var samningurinn samþykktur í atkvæðagreiðslu sem lauk á Þorláksmessu.

Samninganefnd VFÍ við ríkið hefur vísað deilunni til sáttasemjara og var fyrsti fundur með honum föstudaginn 19. desember.

Óásættanlegar línur lagðar - lítið svigrúm

Samninganefndir VFÍ sætta sig ekki við kjarasamninga sem ákveðnir eru af utanaðkomandi aðilum. Eins og áður hefur verið sagt frá hafa Samtök atvinnulífsins ásamt óskyldum aðilum á vinnumarkaði lagt línurnar og samninganefndum VFÍ gefið lítið svigrúm til að semja um kjör fyrir félagsmenn sína.

Staðan í kjaraviðræðum og lítill skilningur á stöðu háskólamenntaðra veldur áhyggjum. Svana Helen Björnsdóttir formaður VFÍ, Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM, Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands hafa hist á fundum og borið saman bækur sínar. Þessu samtali verður haldið áfram þó læknar og hjúkrunarfræðingar hafi náð kjarasamningum. Til umfjöllunar er meðal annars staðan hjá ungu fólki almennt sem þarf iðulega að bera þungar byrðar vegna afborgana námslána, slæmrar stöðu á húsnæðismarkaði og í leikskólamálum, svo eitthvað sé nefnt.

Samstarf við önnur háskólafélög

Kjaradeild VFÍ á gott samstarf við önnur háskólafélög og fylgist grannt með gangi mála. Það er sammerkt öllum þessum hópum að viðsemjendur kvarta undan tregðu háskólamanna til að gangast inn á það tilboð sem liggur á borðinu sem inniheldur það sama og samið var um á almenna markaðnum síðasta vetur. Eins og áður hefur komið fram þýðir það kjararýrnum fyrir háskólafólk. 

Eins og áður hefur komið fram þá er búið að gera kjarasamninga við RARIK og Orkuveituna.

Upplýsingar vegna FRV

Í júní var tölvupóstur sendur til félagsmanna sem heyra undir FRV samninginn með upplýsingum um stöðu mála í viðræðunum. Þar kom meðal annars fram að samninganefnd FRV/SA ákvað að beina þeim tilmælum til aðildarfyrirtækja FRV að hrinda í framkvæmd þeim almennu launabreytingum sem samið hefur verið um á vinnumarkaði, þ.e. 3,25% og að lágmarki kr. 23.750 frá og með 1. apríl 2024.

Stjórn Kjaradeildar VFÍ fylgist vel með gangi mála og fer yfir stöðuna á aukafundum þegar þörf þykir.

Fréttin var fyrst birt 7. júní 2024 og er uppfærð reglulega.

Hér fyrir neðan er ítarefni vegna kjaraviðræðna.

Samningaviðræður ekki réttnefni

Samninganefndir félagsins hafa hist og borið saman bækur sínar. Mikil óánægja er með gang mála við samningaborðið og samninganefndir sammála um að samningaviðræður séu ekki réttnefni. Samninganefndum er afhentur fjögurra ára samningur sambærilegur þeim sem Efling og VR gerðu fyrr á árinu og minnst var á hér að ofan. Innihald slíks samnings þýðir að enn minnkar bilið á milli ófaglærðra og háskólamenntaðra. Verkfræðingafélagið hafði enga aðkomu að þeim kjarasamningum heldur fóru þær samningaviðræður fram á milli Samtaka atvinnulífsins annars vegar og stéttarfélaga innan vébanda Alþýðusambands Íslands á almennum vinnumarkaði hins vegar. Heildarkostnaðarmat þeirra samninga hefur verið áætlað í kringum 17,2% á þessum fjórum árum og þar af hefur hvert félag haft um 0,7% til ráðstöfunar í sérkröfur sem eingöngu á við það umhverfi sem þeir starfa í. Sem dæmi hefur verið nefnt að þessi 0,7% gætu nýst í meiri orlofsávinnslu, hærra framlag í sjóði, leiðréttingu á launatöflum og öðru sem félagsmenn viðkomandi félags hafa óskað eftir. Þetta breytir engu um stóru myndina um hversu háskólamenntaðir hafa dregist aftur úr.

Rýnt í tölurnar

Í umræðum við samningaborðið hefur verið bent á að nokkur stéttarfélög hafa samið um launahækkanir sem eru 3,25% árið 2024 og 3,5% á ári árin 2025-2027, þó lágmarkshækkun grunnlauna 23.750 kr. Þessi lágmarkshækkun grunnlauna þýðir að öll grunnlaun undir 730.770 kr. hækka meira hlutfallslega en 3,25% á fyrsta ári og grunnlaun undir 678.572 kr næstu ár á eftir. Þetta er í kjölfar samninga þar sem samið hefur verið að miklu leiti um krónutöluhækkanir síðustu ár.

Meðal grunnlaun árið 2023 eru 660 þús. kr., en ef einungis er horft til fullvinnandi einstaklinga eru meðal grunnlaunin 742 þús. kr. Af þessu er því ljóst að fyrir allar stéttir sem hingað til hafa grætt á krónutöluhækkunum munu áfram fá mjög háar launahækkanir þegar horft er til hlutfalls launa. Þær stéttir sem staðið hafa í stað, t.a.m. háskólastéttirnar, standa hins vegar áfram í stað með lágmarkshækkun á grunnlaunum.

Hlekkur á síðu Hagstofunnar sem sýnir meðalgrunnlaun eftir mismunandi starfsstéttum.

Rétt er að minna á að Verkfræðingafélag Íslands var aðili að yfirlýsingu 22 stéttarfélaga háskólamenntaðra í marsmánuði sl. Þar var minnt á hvernig ítrekaðar krónutöluhækkanir í síðustu kjarasamningum hafa leikið þennan hóp og var úrbóta krafist.

Niðurstaðan; áframhaldandi kjararýrnun og öfug launaþróun fyrir háskólamenntaða.

Samingsumboðið til SA

Flest hálfopinber fyrirtæki hafa framselt samningsumboð sitt til Samtaka atvinnulífsins og það hefur Félag ráðgjafarverkfræðinga einnig gert. Á þeim vettvangi hefur stefnan verið sú að launaliður er ekki ræddur heldur er starfsmönnum gert að sækja sér launahækkanir í launaviðtölum. Reynsla félagsmanna af launaviðtölum er misjöfn. Í sumum tilfellum er vísað til þess að ekki sé svigrúm til hækkana eða að atvinnurekendur skýla sér á bak við jafnlaunavottun. Réttur til hækkana er einnig of óljós í slíkum samningum. Í kjarasamningi VFÍ við SA, sem er viðmiðunarsamningur á almennum markaði, er sagt að „launakjör háskólamanna ráðast af því sem um semst á markaði.“ Sumir atvinnurekendur kjósa að túlka samninginn á þann veg að einungis komi til launahækkana í launaviðtölum og neita að fara eftir lágmarkshækkunum sem orðið hafa hjá öðrum hópum.

Tölur sýna að kaupmáttur sérfræðinga á íslenskum vinnumarkaði hefur ekki aukist með sambærilegum hætti á undanförnum áratugum og hjá ófaglærðu starfsfólki. Sú þróun er til þess fallin að letja einstaklinga að sækja sér æðri menntun. Launaþróunin sýnir að menntun er ekki metin til launa með sama hætti og áður. Þó flestir geti tekið undir að viss launajöfnuður sé af hinu góðu er nauðsynlegt að launasetning taki ávallt mið af menntun, reynslu starfsfólks og eftirspurn á vinnumarkaði. - Hið síðastnefnda á sérstaklega við um verkfræðinga og tæknifræðinga þar sem skortur er á tæknimenntuðu fólki.

Samninganefndir VFÍ hafa ekki setið auðum höndum þó stundum þurfi þær að bíða óþarflega lengi eftir fundum með viðsemjendum. Nefndirnar hafa hist á fundum í Verkfræðingahúsi, farið yfir stöðu mála og borðið saman bækur sínar. Einnig hafa þær fengið upplýsingar úr ýmsum áttum, til dæmis gögn frá kjaratölfræðinefnd og fræðslu um jafnlaunavottun. Það er ljóst að launagreiðendur eru margir hverjir á villigötum með hvernig þeir nota jafnlaunavottun sem afsökun í launaviðtölum fyrir því að ekki sé hægt að hækka laun.


Skýring:
Stéttarfélag tölvunarfræðinga og Stéttarfélag byggingafræðinga eru með þjónustusamning við Verkfræðingafélagið á sviði kjaramála. Skrifstofa VFÍ vinnur því að kjarasamningsgerð fyrir þessi félög.