Vetrarleiga Orlofssjóðs VFÍ
Frá 7. júlí verður hægt að bóka orlofsvikur fram í miðjan maí 2026.
Frá mánudeginum 7. júlí kl. 10:00 verður hægt að bóka orlofsvikur frá lokum ágústmánaðar 2025 til 15. maí 2026 á orlofsvef OVFÍ; www.orlof.is/vfi
Að gefnu tilefni viljum við biðja sjóðfélaga að ganga vel um og láta vita ef eitthvað skemmist í bústöðunum.
Um vetrarleigu gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).
Eins og áður að vetri eru orlofshúsin leigð frá fimmtudegi til fimmtudags. Hver sjóðfélagi getur bókað eina orlofsviku fyrir áramót og aðra eftir áramót.
Teknir verða 3 punktar fyrir hverja orlofsviku að vetri. Verðið er óbreytt; vikan kostar kr. 25.000.- Nema stærsta húsið í Hraunborgum og nýju bústaðirnir tveir í Húsafelli kosta kr. 30.000.-
Vetrarfrí og páskar
Eins og áður verður vetrarfrísvikum grunnskólanna úthlutað sérstaklega. Um er að ræða vikuna: 23. til 30. október 2025 og 19. til 26. febrúar 2026. Páskavikunni 2. til 9. apríl 2026 verður einnig úthlutað sérstaklega.
Vetrar og páskafrísvikum er sem úthlutað eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).
Ný íbúð í Sómatúni
Orlofssjóðurinn hefur keypt aðra íbúð í húsinu við Sómatún 1 á Akureyri. Ráðgert er að hún verði tilbúin til útleigu í nóvember 2025 og munu sjóðfélagar fá upplýsingar í tölvupósti. Fyrstu tvær vikurnar í október verða einnig framkvæmdir í eldri íbúðinni.
Framkvæmdir í Stórarjóðri 14
Bústaðurinn við Stórarjóður 14 verður ekki í útleigu í september og október vegna framkvæmda. Komið er að umfangsmiklum endurbótum, m.a. verður settur nýr pottur og húsið lagfært að utan og innan.
Nýir bústaðir í Húsafelli
Sumarið 2025 voru teknir í notkun tveir glæsilegir bústaðir í Húsafelli.
Aðalstræti Ísafirði
Orlofseignin við Aðalstræti á Ísafirði verður í leigu út september.
Íbúð í Garðabæ er í dagsleigu
Íbúðin við Nónhæð í Garðabæ er í dagsleigu. Sólarhringurinn kostar kr. 5.000.- og frádráttur 1 punktur á sólarhring. Er þetta gert til að koma til móts við þá félagsmenn sem þurfa t.d. að sækja þjónustu í miðri viku til höfuðborgarsvæðisins.
Athugið að einungis er heimilt að vera með gæludýr í fjórum bústöðum í Klapparholti (Stóruborg 8 og 10), Stórarjóðri 14 í Húsafelli og Álfasteinssundi 19, Hraunborgum.
Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.
Á vef VFÍ eru greinargóðar upplýsingar um orlofssjóðinn:
https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/orlofssjodur/
Myndin er af nýjum bústað OVFÍ við Birkiflöt í Húsafelli.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla