Viðurkenningar VFÍ á Meistaradegi
VFÍ veitti viðurkenningar á Meistaradegi Verkfræðistofnunar HÍ.
Verkfræðingafélag Íslands veitti þremur meistaranemum viðurkenningu fyrir fyrir sérlega vel unnar og áhugaverðar veggspjaldakynningar á Meistaradegi Verkfræðistofnunar sem nýverið fór fram í Grósku. Helgi Gunnarsson formaður VFÍ flutti ávarp og afhenti viðurkenningarnar.
Kynntur var fjöldinn allur af verkefnum meistaranema í verkfræðigreinum og tölvunarfræði og sem endranær var afar áhugavert að sjá hve mikil nýsköpun og gróska er í rannsóknum á sviði verkfræði og tölvunarfræði við HÍ.
Gunnar Stefánsson, formaður stjórnar Verkfræðistofnunar HÍ setti daginn og að því loknu héldu þeir Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs og Helgi Gunnarsson, formaður Verkfræðingafélags Íslands ávörp. Þá kynntu einnig prófessorar við verkfræðideildir skólans spennandi rannsóknarverkefni sem unnið er að um þessar mundir. Lotta María Ellingsen kynnti afar fróðlegar rannsóknir á sviði myndgreiningar þar sem verið er að þróa nýja lausn við greiningar á heilahrörnunarsjúkdómum. Rajesh Rupakhety kynnti rannsóknir á sviði jarðskjálftaverkfræði, Sigurður Brynjólfsson fræddi gesti um rannsóknir á bætingu á virkni gerviútlima og Páll Melsted flutti erindi um rannsóknir sínar á sviði lífupplýsingafræði.
Helgi Gunnarsson, formaður Verkfræðingafélags Íslands, afhenti þremur nemendum viðurkenningar fyrir áhugaverð lokaverkefni. Viðurkenningar hlutu:
- Áslaug Þóra Halldórsdóttir, meistaranemi í rafmagns- og tölvuverkfræði. Lokaverkefni hennar var Þróun tækja sem auðvelda niðursetningu bauja og ferilvöktun bauja í notkun.
- Margrét Snorradóttir, meistaranemi í reikniverkfræði, hlaut viðurkenningu fyrir verkefnið Sköpunargáfa og ADHD: Rannsókn á hlutverkum ofureinbeitingar og margbreytilegrar hugsunar. Verkefnið var unnið í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu.
- Thanh Ha Hoang, meistaranemi í byggingaverkfræði, verðlaun fyrir verkefnið Seismic Performance of Mid-rise Concrete Residential Buildings in Reykjavík.
Við óskum þeim innilega til hamingju og þökkum Verkfræðistofnun HÍ fyrir ánægjulegt samstarf.
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Helgi Gunnarsson formaður Verkfræðingafélagsins, Gunnar Stefánsson formaður stjórnar Verkfræðistofnunar HÍ, Margrét Snorradóttir, Áslaug Þóra Halldórsdóttir, Thanh Ha Hoang og Sigurður M. Garðarsson forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ.