Kosið í stjórnir VFÍ - Kynning á frambjóðendum

Í aðdraganda aðalfundar verður kosið í stjórnir Verkfræðingafélags Íslands. Kosningin er rafræn og fer fram dagana 1. - 8. apríl.

25. mar. 2019

Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn 11. apríl 2019 í Verkfræðingahúsi Engjateigi 9 og hefst fundurinn kl. 17. 

Í aðdraganda aðalfundar fara fram kosningar í stjórnir félagsins. Kosningin er rafræn og fer fram dagana 1. - 8. apríl. Þeir sem ekki hafa skráð netfang geta kosið á skrifstofu Verkfræðingafélags Íslands, Engjateigi 9, 105 Reykjavík, á skrifstofutíma.

Aðalstjórn VFÍ. Stýrir málefnum félagsins, sér til þess að skipulag og starfsemi sé í góðu horfi og í samræmi við lög félagsins. 
Stjórn Kjaradeildar. Deild launþega í VFÍ fer með yfirstjórn kjaramála, m.a. gerð kjarasamninga og gerð reglna fyrir kjarasjóði.
Stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi. Sinnir málefnum stjórnenda og sjálfstætt starfandi og þeirra sem kjósa að standa utan Kjaradeildar. Meginverkefnið er að stuðla að virkri samfélagsumræðu á áhugasviðum félagsmanna. Deildin sinnir ekki kjaramálum. 

Kosning til aðalstjórnar VFÍ - Kosið er sérstaklega um formann.

Í framboði til formanns Verkfræðingafélags Íslands:

Gunnar Hrafn Hall.
Svana Helen Björnsdóttir.

Jafnframt er kosið um einn meðstjórnanda og tvo varameðstjórnendur, annan til tveggja ára og hinn til eins árs. (Niðurröðun ræðst af atkvæðamagni).

Anna Beta Gísladóttir.
Brynjar Örn Ragnarsson.
Guðrún A. Sævarsdóttir.
Hlín Benediktsdóttir.
Ívar Már Jónsson.

Kosning til stjórnar Kjaradeildar VFÍ. - Kosið er sérstaklega um formann.

Í framboði til formanns Kjaradeildar VFÍ (sjálfkjörinn): 

Birkir Hrafn Jóakimsson. (Kynning væntanleg).

Jafnframt er kosið um tvo meðstjórnendur og varameðstjórnanda. 
(Niðurröðun ræðst af atkvæðamagni).

Erlendur Örn Fjeldsted.
Gunnar Sigvaldason.
Halldór Zoëga.

Kosning til stjórnar Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi í VFÍ. - Kosið er sérstaklega um formann.
Í framboði til formanns Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi (sjálfkjörinn):

Páll Árni Jónsson.

Jafnframt er kosið um meðstjórnanda og varameðstjórnanda. 
(Niðurröðun ræðst af atkvæðamagni).

Bergþór Þormóðsson.
Guðjón Þór Ragnarsson. (Kynning væntanleg).
Sigurður Valur Ásbjarnarson. (Kynning væntanleg).